laugardagur, nóvember 25, 2006

Fegurðarsamkeppnir


Hvað er það sem að fær mann til þess að taka þátt í Herra Ísland? Minnimáttarkennd? Leit að viðurkenningu? Eða tapaðir þú veðmáli? Seinasti kosturinn er sennilega sá sem að á mestan rétt á sér. Einhvern veginn finnst manni það bara eðlilegra að stúlkur keppi sín á milli hver sé hinum fegurri heldur en að strákar geri það. Hvernig er hægt að réttlæta það? Þarf að réttlæta það? Þessar keppnir eru einhvern veginn svo fullar af hégóma, yfirborðskennd og fáfræði. Það er ekki hægt að dæma um fegurð, fegurð er breytileg sem og fagurfræðilegt sjónarmið hvers og eins. Fegurð verður ekki mæld í “magictan” tímum. Ekki í tannhvítu, heldur því sem að þú gefur af þér og gerir fyrir aðra. So fucking what þó að þú sért flink/ur í að labba og dilla rassinum í takt, og hverjum er ekki sama þótt að þú getir veifað og brosað á sama tíma, það kemur ekki til með að gera þig að betri persónu. Það kemur enginn til með að tala um að þú hafir nú verið Herra Ísland, eða Orublu strákurinn þegar að það er verið að jarðsyngja þig. Þannig að er nefnilega mál með vexti að eventually all your trophies will be trashed og það verður hegðun þín sem að kemur til með að vera aðal topicið í jarðaförinni þinni, ekki hinn gríðarlega mikli hæfileiki þinn að geta brosað, veifað, gengið og dillað rassinum allt á sama tíma.

5 Comments:

Anonymous Hófý said...

Haha!.. besti pistill sem ég hef lesið lengi...

27/11/06 22:09  
Anonymous Nafnlaus said...

Góður :o) Mamma.

28/11/06 22:48  
Blogger Magnús Kristinsson said...

Mjög skemmtileg lesning.

29/11/06 11:30  
Anonymous Heiðrún Erna! said...

Skoooo....
Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að horfa á fegurðarsamkeppnir, hvort sem homo sapiens með pjöllur eða typpalinga eru að keppa....
Svo lengi sem ég fæ mína skemmtun út úr þessu er mér nokk sama...
Einnig verð ég að segja að ég held að það sé ekkert leiðinlegt að taka þátt í þessu... Kynnist fullt af fólki, lærir að koma fram og færð að gera margt sem maður gerir ekki dags daglega..
...ég viðurkenni þó alveg að stundum fæ ég kjánhroll þegar ég horfi á svona... en þetta pirrar mig engan vegin, því ef svo væri þá væri ég ekki að fylgjast með þessu:D

...góð skrif samt (Y)

2/12/06 15:35  
Anonymous Nafnlaus said...

djö er ég ánægð með þessa grein :) ég er bara svoooo sammála þessu! þetta er ógeðslegt að horfa á þessa keppnir.. afhverju á að láta stráka dansa saman uppá sviði í nærfötum ?? :S jakk! ég hitti strákana úr herra ísl á laugardkvöldinu eftir keppnina.. og ég gerði svo mikið grín af þeim því þeir voru alltaf að sýna ''vöðvana'' sína á keppninni.. en það var ekkert þarna.. :P hehe en einn gaurinn var eiginlega bara soldið fúll útí mig.. hehe tók þessa keppni greinilega mjög inná sig :P
þetta var bara fyndið sko!
kv.Anja

2/12/06 15:40  

Sendu inn athugasemd

<< Home