Jólaskraut?
,,Ljósadýrð loftin gyllir!" Fátt er notalegra en jólaljósin sem að lýsa upp skammdegið yfir hátíðarnar. Fjölskyldan nýtur þess að koma saman og hengja upp jólaseríurnar, vel dúðuð í kuldanum, kíkja síðan inn í hlýjuna, sötra heitt kakó og narta í piparkökur. Íslenska þjóðin sameinast síðan í því að rúnta um götur bæjarfélaganna og sjá hvernig nágrönnunum hefur tekist til við að skreyta kofana sína. Einstaka fjölskyldur hér á Suðurnesjum eiga það þó til að tapa sér og virðist vera gjörsamlega veruleikafirrt þegar að kemur að því að sjá skreytingarnar í einhverju samræmi við hinn almenna borgara og minna hús þeirra meira á flugvöll heldur en smekklega skreytt einbýlishús. Hefur þetta valdið töluverðum vandræðum í aðflugi, nú seinast þegar að Boeing 747 farþegaþota var rétt búin að lenda á Norðurvöllunum.

4 Comments:
bara í bloggstuði.. hahaha.. lenti á norðurvöllum..
hvernig væri að fá smá blogg í þetta kúreki?
Ég er ennþá að kýkja hingað inn þótt það séu að verða 3 ár frá því þú bloggaðir síðast.
nei 2 ár meina ég!
Sendu inn athugasemd
<< Home