laugardagur, desember 09, 2006

Ísland fyrir Íslendinga?


Schengen sáttmálinn gerir íbúum inn Schengen svæðisins kleift að ferðast frjálst á milli þeirra landa sem að samþykkt hafa sáttmálann. Af þessum sökum þá er erlent vinnuafl að tröllríða íslensku atvinnulífi, útlendingar sem að bara valsa inn á fósturjörð vora og byrja að vinna. Að vissu leiti er þetta mjög jákvætt. En líkt og hár Samsonar í biblíunni þá er einn vænn galli á þessu fyrirkomulagi. Hvað erum við að ráða þetta fólk í þjónustustörf þegar að það getur ekki tjáð sig á íslensku? Gott dæmi eru asísku konurnar sem að vinna í Horninu á Selfossi. Þú gengur inn í búðina, og í kurteisi þinni fyrir þessu fólki sem að er nú bara að reyna að hafa ofan í sig þá býður þú þeim að sjálfsögðu góðan daginn! ,,Viltu afrit?” segir þá konan! What?! Ég er ekki einu sinni byrjaður að versla og hún er farin að bjóða mér afrit. Greyið afgreiðslukvendið var þá bara búin að læra þessa setningu og flaggaði henni við hvert tækifæri sem að bauðst. Það er því segja að eitt dýrasta fyllerí sem að íslenska ríkið hefur fjármagnað var þegar að Hr. Jón Baldvin Hannibalsson fór utan til þess að skrifa undir Schengen sáttmálann.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

En úps, schengen hefur ekkert að gera með frjálst flæði vinnuafls innan EES og margir af þessum erlendu verkamönnum eru fínir kallar / kellingar. Shengen hefur hinsvegar auðveldað alþjóðlega brotastarfsemi hér á landi.

kv
O

9/12/06 22:08  
Anonymous Hófý said...

ég er algjörlega ósammála þér núna.. allavega með þessar konur í horninu.. ég þekki nú fjöldann af tælendingum, duglegasta fólk sem ég veit og er ansi fljótt að læra íslensku, ekki treysti ég mér til að flytja til tælands og læra tungumálið þeirra. Svo verður maður bara að gefa sér tíma til þess að hlusta á það, svo að það þori að segja að tala við mann. það er mjög varkárt og hrætt við að íslendingar geri grín af þeim.

12/12/06 16:18  
Anonymous Brynja Huld said...

Jahér, brottfluttur sundmaður með blogg;)
varð að kíkja fyrst þú skrifaðir í gestó á bloggið mitt, set þig í bloggrúntinn:)!

12/12/06 17:54  
Anonymous Kristinn said...

já ég verð að segja að mér finnst tælendingar ekkert spes en Pólverjarnir eru fínir.

12/12/06 20:39  
Blogger Magnús Kristinsson said...

KYNÞÁTTAFORDÓMARI

13/12/06 02:48  
Anonymous Kolbeinn said...

Ég veit að þetta komment er u.þ.b tveimur árum of seint en ég ætlaði nú bara að benda á að engin asísk þjóð er hluti af Schengen sáttmálanum svo þessi færsla fellur aðeins of stórt um sjálfa sig :D sem þýðir líka að þessar tælensku stelpur hafa væntanlega bara komið hérna í gegnum hefðbundnar leiðir enda gat fólk alveg komið til Íslands að vinna áður en Schengen sáttmálinn kom til sögunnar ;)

2/11/08 13:28  

Sendu inn athugasemd

<< Home